Auglýsing

Allir hvolparnir komnir á sitt framtíðarheimili

14. september 2011 klukkan 17:33
Það er orðið ansi tómlegt hér, síðasti hvolpurinn fór að heiman í gær. Við höfum verið dugleg að fylgjast með þeim á Facebook eftir að þeir fóru og gaman að sjá myndirnar af þeim þar. Óskum nýbökuðum hvolpaforeldrum til hamingju og vonum að allt gangi vel.... Nánar
Guðbergi og Sigrún

Sjáum ekki upplýsingarnar ykkar!

09. september 2011 klukkan 09:54
Hæ, það eru margir að okkur biðja um upplýsinga um tíkina sem eftir er. Því miður sjáum við hvorki símanúmer né netfang nema að það sé sett inn í textann sjálfan. Best er bara að hringja í síma 843-4384... Nánar
Guðbergi og Sigrún

Aðeins einn eftir :)

06. september 2011 klukkan 20:55
Jæja nú er aðeins einn hvolpur eftir. Það er hrikalega flott tík sem heitir Elva. Elva var fyrst til að fá uppsperrt eyru og ætlar greinilega að fá eyrun hennar mömmu sinnar sem eru ekkert slor. Bindum við því miklar vonir við hana um góða dóma á sýningum og er mjög líklegur arftaki mömmu sinnar!... Nánar
Guðbergi og Sigrún

Það er orðið ansi tómlegt

01. september 2011 klukkan 21:09
Það er orðið ansi tómlegt í koti hjá okkur því það eru aðeins tveir hvolpar eftir af þeim sex sem fæddust. Þeir tveir sem eftir eru, eru Elva og Emil. Við erum ákaflega ánægð með ættbókarnöfnin og ákváðum að bókstafurinn E væri þemað.

Nöfnin eru:
Jökuls Elja Ducissam in black
Jökuls Evita Hercegnö fekete
Jökuls Elva Coutess from red
Jökuls Emilianna Grófnö a piros
Jökuls Emil Duke en noir
Jökuls Erró Zählen Sie die schwarzen... Nánar
Guðbergi og Sigrún

Jæja þá eru þessar elskur farnar að sjá

24. júní 2011 klukkan 17:28
Hvolparnir eru tveggja vikna í dag og byrjuðu þeir daginn á að opna augun sýn í fyrsta sinn. Allir sem einn. Þeir hreinlega rifna út af móðurmjólkinni og sofa allan sólarhringinn nema til að nærast.
Guðbergi og Sigrún

Getum ekki sett inn myndir!

19. júní 2011 klukkan 21:06
Það er einhver bilun á bloggar.is eða að  við séum komin með vírus. Við getum hvorki eytt né vistað myndir á vefsvæðinu. Einnig langar okkur að minna á að þegar skilaboð eru send sjáum við ekki netfangið nema að það sé skráð í texta.
Guðbergi og Sigrún

6 yndislegir hvolpar komir í heiminn

11. júní 2011 klukkan 14:16
Arí gaut í gær 6 hvolpur, fjórum tíkum og tveimur rökkum. Báðir rakkarnir eru „Black and tan"  ásamt tveimur tíkum. Hinar tíkurnar eru „Tan". Móður og hvolpum heilsast vel og allir virðast frískir og sprækir.
Guðbergi og Sigrún

Þá fer þetta að styttast.

09. júní 2011 klukkan 09:55
Áætluð dagsetning á hvolpum er 16 júní. Annars gætum við ímyndað okkur að þetta kæmi fyrr þar sem Arí er orðin svo sver. Hún hefur aldrei verið svona sver áður. Það hafa margir sent okkur fyrirspurnir um verð og slíkt. Við höfum ekki ákveðið verðið og viljum ekki úthluta neinum hvolpi fyrr en við sjáum að allir eru fæddir og heilbrigðir þó svo að ekki sé við öðru að búast finnst okkur ekki rétt að úthluta þeim strax. En endilega fylgist með og við látum vita um leið og þeir fæðast.
Guðbergi og Sigrún

Þá er það orðið augljóst

03. maí 2011 klukkan 09:35
Arí er farin að þykkna þannig að það er orðið nokkuð augljóst að hvolpar lýta dagsins ljós um miðjan júní. Það hefur verið töluvert af fyrirspurnum sem er bara gaman Smile
Við vonum bara að allt gangi vel og Arí líði sem best.
Guðbergi og Sigrún

Jæja það má búast við hvolpum 15. júní.

14. apríl 2011 klukkan 17:36
Þá er búið að para Arí og Whisper. Ef allt hefur gengið að óskum koma hvolpar um miðjan júní.
Guðbergi og Sigrún

Nýtt got??

28. mars 2011 klukkan 13:26

Jæja nú eru báðar tíkurnar fljótlega að  byrja í standi. Því erum við að velta því fyrir okkur hvort við eigum að para aðra eða báðar að þessu sinni. Við högum ekki verið með got legni en erum samt með þó nokkrar fyrirspurnir. Því skellum við þessari spurningu bara á netið: Er áhugi fyrir Miniature Phincer hvolpum? Ef svo er endilega láttu okkur vita nafn og síma og við verðum í bandi. Ath. það dugar ekki að netfang né síma í þar tilgreind svæði á skráningu gestabókar það verður að vera í texta svo að það birtist okkur!

Hlakka til að heyra frá ykkur Wink

Guðbergi og Sigrún

Dómarinn var frekar harður....

29. ágúst 2010 klukkan 17:15
Þá er enn ein sýningin að baki og Arí valin besti hundur tegundar og fékk alþjóðlegt meistarastig. Dómarinn var breskur og frekar harður. Það komst enginn hundur áfram nema Arí og tveir reknir út af án þess að fá dóm sem okkur þótti hálf einkennilegt þar sem hundarnir áttu það sannarlega ekki skilið. Dómarinn var hræddur við hundana og halda þurfti um munn þeirra þar sem hún þorði ekki að skoða þá öðruvísi. Við getum samt ekki annað en verið ánægð með okkar niðurstöðu þrátt fyrir einkennilega dómgæslu.
Hér eru dómarnir:
Arí
Ásta
Guðbergi og Sigrún

Getum ekki annað en verið stolt!

08. júní 2010 klukkan 16:02

Arí og Ásta tóku þátt í hundasýningunni sem var á vegum HRFÍ núna um helgina. Árangurinn var svakalega góður 1 og 2 sæti!

Arí keppti í meistaraflokki og var valin besta tík tegundar og besti hundur tegundar. Þetta er í annað sinn Sem Arí fær þessi frábæru verðlaun (BOB) Ásta keppti í unghundaflokki og fékk fyrsta sæti og komst upp um flokk og keppti við mömmu sýna og allar hinar tíkurnar. Við áttum nú ekki von á meinum stórræðum með hana Ástu þar sem hún er svo ung og óþroskuð.  Einnig eru hinar tíkurnar alveg  hrikalega flottar! Einnig hlaut hún íslenskt meistarastig Cool Það var mjög ánægjulegt að líta yfir sviðið og sjá báðar tíkurnar sýnar í tveimur efstu sætunum og koma heim með eitt hvorn bikarinn.

Við sýndum ekki sjálf að þessu sinni heldur fengum við hana Guðrúnu Dögg Sveinsdóttur til að sýna þær og stóð hún sig ákaflega vel. Enda kom fram í dómum þeirra beggja hvað hún var vel sýnd. Þakka ég hér með Guðrúnu Dögg enn og aftur fyrir frábara frammistöðu.

Allir hundarnir voru augnskoðaðir eftir sýningu og reyndust með fullkomin augu.

Sjá nánari umsögn dómara hér:
Arí
Ásta

Guðbergi og Sigrún

Arí sigurvegari dagsins

27. febrúar 2010 klukkan 17:38
Arí og Ásta tóku báðar þátt í alþjóðlegri hundasýningu á vegum HRFÍ og kom Arí heim með tvo bikara. Dómarinn er frá Finnlandi  og heitir Elina Tan-Hietalahti. Ásta lenti í fyrsta sæti í ungliðaflokki að meðan Arí lenti í fyrsta sæti í opnum flokki ásamt því að vinna sem besti hundur tegundar. Dóm og umsagnir er hægt að sjá hér:
Arí
Ásta
Guðbergi og Sigrún

Jökuls ræktun

11. febrúar 2010 klukkan 13:05
Þá erum við loksins komin með ræktunarnafn sem tók ekkert smá tíma þar sem allt virtist upptekið. Nafnið er Jökuls ræktun og erum við bara nokkuð ánægð með þaðSmile
Annars dafnar öllum vel, tíkurnar báðar í standi  þannig að við erum að verða brjáluð að halda Pedró frá. Vonum samt að það takist þar sem ekkert got er áætlað strax takk fyrir!
Guðbergi og Sigrún

Allir hvolparnir komnir með ný heimili!

16. október 2009 klukkan 14:06
Þá eru allir hvolparnir komnir með ný heimili og orðið ansi tómlegt heima. Neró verður þó hjá okkur í pössun í ca. viku í viðbót. Það er hrikalega skrítið þegar allir eru farnir þar sem það hefur verið ansi mikið fjör! Hvolpanna er sárt saknað og eins og ég hef sagt áður þá vildu dætur okkar „eiga þá alla!" En ljósi punkturinn er að þeir eru allir komnir á góð heimili þar sem þeir verða að sjálfsögðu númer eitt allavega fyrst um sinn. Við hlökkum til að fá að fylgjast með og setjum myndir inn þegar þær berast. Einnig þegar fer að hlýna að hittast í göngu og fá að sjá litlu krílin.
Nýbökuðum hvolpaeigendum vil ég óska til hamingju og megi gæfa fylja ykkur um ókomna framtíð! Wink
Guðbergi og Sigrún

Aðeins einn eftir!

14. október 2009 klukkan 08:36
Jæja þá hafa hvolparnir verið að fara að heiman hver á eftir öðrum og bara einn rakki eftir til sölu ásamt honum Neró sem verður í pössun hjá okkur í tvær vikur. Það er orðið ansi tómlegt þó svo að mikið sé um hunda á heimilinu. Og það sem það besta er að mér sýnist allir hafa fengið góð heimili Laughing
Guðbergi og Sigrún

Fáum ekki tölvupóstfang viðkomandi gests!

07. október 2009 klukkan 19:49
Ágætu gestir,

Við höfum fengi þó nokkrar  fyrirspurnir í gegnum gestabókina um upplýsingar um hvolpana með beiðni um að senda þær upplýsingar í tölvupósti. Einhverra hluta vegna birtist tölvupóstfang viðkomandi gests ekki og því getum við ekki svarað nema að póstfangið komi fram í texta reit. En allavega við eigum tvo yndislega rakka eftir sem eru tilbúnir til afhendingar.

Guðbergi og Sigrún

Allir örmerktir í dag!

05. október 2009 klukkan 22:22
æja farið var með alla í bólusetningu og örmerkingu í dag. Það verður að segjast að hvílíkar hetjur voru hér á ferð því engin vældi þegar krikalega stór nál fór inn í feldinn. Örmerkja sprautan er allt of stór fyrir svona litla hunda Sealed. Það er sama stærð fyrir stóra sem smáa. Við fundum að þeir fengu hita eftir bólusetninguna. Samt ótrúlega hressir og sprækir, enda alveg æðislegir...
Guðbergi og Sigrún

Nýjar myndir komnar inn

30. september 2009 klukkan 18:50
Jæja nú eru hvolparnir rúmlega sjö vikna. Ég verð að viðurkenna að við höfum ekki verið nógu dugleg að setja inn myndir en nú bætum við það aðeins upp og skellum inn nokkrum í viðbót. Hvolparnir dafna ansi vel og hrikalega duglegir að borða. Þeir eru fjörugastir um fimm leytið og þá er sko mikið fjör og slegist út í eitt þar til þeir detta niður og sofna. Annars eru þeir mjög rólegir, góðir og yndislegir.
Guðbergi og Sigrún